Langaði að spurja þig..
Hvert er uppáhalds stúlku-nafnið þitt ??
- og af hverju

Það má þó ekki vera þitt eigið nafn.. . ..og þó -jújú
..við eigum nokkur uppáhalds..
- en kannski er "nafnið" að fara fram hjá okkur?

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Helena, ekki spurning ;)
kv. Lúlla

Við vorum líka voða hrifin af "María" en frænka hennar var á undan ;)
Nafnlaus sagði…
Regína :)
Nafnlaus sagði…
Hrefna og Hrafnhildur finnast mér kröftug og falleg nöfn. Vala og Halla mjúk og falleg. Kristín og Vigdís klassísk og falleg og svo loks Rúna, Björg, Rut og Hera sem eru nöfn sem ég er líka hrifin af.
Læt þetta duga í bili :)
ek
Nafnlaus sagði…
Fríða, vegna þess að mamma mín er yndisleg og heitir Fríða....

Ásrún, nú því prinsessan mín heitir það....

Katla finnst mér sterkt og flott en samt sem áður stutt og laggott.

Alda, veit ekki afhverju en ég hef alltaf heillast að þessu nafni, kannski því að Unnur merkir "alda"

Áróra finnst mér dáldið flott
Iðunn, Hera, Ísold, Ísabella, Hrafntinna, Pála, Petra, Steina, Sæunn, Vera, Hekla, Brynja, Ísgerður og Karen finnst mér líka flott......

Kolka, bara því það er svo sérstakt
P*aldis sagði…
Fyndið.. sum af okkar uppáhalds, leynast þarna ;o)
..í þessari nafnaflækju í kommentakerfinu

..og önnur opna hugann .. . eða flækir valið kannski..
hehe.. þetta er skemmtilegt ! :o)
- að heyra uppástungur.
Nafnlaus sagði…
Gaman gaman
En hvað er ég að heyra eruði að koma heim á morgun ?????
og hvenær á svo að skíra....
Hitti aldrei á þig á MSNinu en well hlakka til að sjá þig og ekki væri verra að fá að sjá ykkur um helgina ;)
Nafnlaus sagði…
sara-agla-maría-emma-júlía-salka-björk-katrín-jóhanna-vera-kristín....
þetta eru þau nöfn sem ég hef fílað síðan ég var lítil.
sum nöfn eru nöfnin á vinkonum mínum :) kannski hefur það e-r áhrif.
gangi ykkur vel.
sjáumst,
anna.
Nafnlaus sagði…
Ég er ofsa hrifin af stuttum nöfnum.

Björt, Hera, Hekla, Malin, Mekkín, Silja, Tara, Kara og Marín...

Gangi ykkur vel og góða ferð heim. Knúz og kossar

Eva
Nafnlaus sagði…
mér finnst "lára" fallegt stúlkunafn
hrefna dögg
Nafnlaus sagði…
gleymdi einu í gær sem ég held pínu upp á: Valva - öðruvísi.
Nafnlaus sagði…
ég trúi því ekki! engin segir andrea!

...;) hlakka tilað sjást
Nafnlaus sagði…
Gleymdi svona til gamans......

María Margrét, bara vegna þess að ég átti að heita því en pabbi hætti við á síðustu stundu, svo hét langamma mín Jane María Margrét

Svo átti ég eina langömmu sem hét Karen Nikkólína Friðrika ;o) Bara svona ef þið eruð að hugsa um sérkennilegu nöfnin ;o)

Matthildur og Írena finnst mér dálítið flott nöfn líka
Nafnlaus sagði…
'Isey
Nafnlaus sagði…
Katla er náttúrulega alveg magnað heheheh


svo finnst mér nöfnin á mínum stelpum voða falleg

Ylfa
Björk
og Örk auðvitað líka

Önnur sem komu til greina hjá mér (þar sem ég ætla ekki að eiga fl stelpur heheheh)

Salka
Tara
Elka

svo finnst mér flott
Hrafntinna
Hrafnkatla
Hrafnhildur
Hrefna
Rakel
Annika
Róberta
Tekla
og fl

Vinsælar færslur