MJÓLK ÚTUM ALLT


Við mæðgur gistum spítalagistingu 1 nótt,
gistum svo "undir eftirliti" heima -aðra nótt
en fengum útskrift í dag..

Ástandið á okkur er sem sagt þannig; Móðir Sprautar MJÓLK ÚT UM ALLT
og litla *Gull* kvartar ekkert.. þiggur allt sem í boði er..
Nema bara; Allt Of Mikið í Boði, fyrir Litla Kroppinn !

Sem lýsir sjér þannig..
að litla barnið okkar er búin að taka þvílílan vaxtarkipp !!
Fer fram úr öllum "vaxtarkúrfum" í lengd og þyngd..
..miðað við fæðingar-tölurnar hennar

Allt er sossum búið að vera eðlilegt..
..nema hvað litla greyjið var byrjuð að SPÚA ælu..
og þá meina jeg.. að ælan kom í bunu útúr henni..
og þá ALLT, sem lillan var búin að drekka
- án þess að tapa gleðinni þó..

Ástæðurnar hefðu getað verið margar..
..en komust læknarnir að því að orsökin væri ekki verri en það..
- að mamman bara er með OF MIKLA MJÓLK..
..og aðeins of gjafmild á litla ángann sinn ! ;o)

Við erum bara að læra inná hvor aðra..
og eru brjóstin á mér að SPRINGA..
..á meðan við reynum nú að fá jafnvægi á þetta hjá okkur
Það er ekkert grín að vera með barn á brjósti !!

Jeg sem hjélt að þetta væri Pís Of Keik !!


Þegar læknarnir ákváðu að "leggja okkur inn"
- til að getað fylgst betur með okkur..
Fannst mér allt í einu eins og litla *gullið* mitt - hefði minnkað um helming !
óúúúú.. hvað jeg varð hrædd innan í mér !
ÞAÐ MÁ EKKI NEITT VERA AÐ !!!

Sem betur fer.. bjátar ekkert á, hjá litla *Gulli* !! :o)

Jeg dáist af foreldrum, sem annast "veik" börn !!
Vá ! - hvað það hlýtur að taka á tilfinningarnar !
SVO ÓTRÚLEGA MIKIÐ SEM JEG ELSKA LITLUNA MÍNA
..og hvað mér þætti erfitt, ef henni liði ílla !

..svo elska jeg líka pabbann hennar á þriðjudögum ;o)

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Mig verkjar
i kinnar og kjálka við það að skoða myndir af gullinu ykkar.
-BROS- Begga
Nafnlaus sagði…
og opin stór augu
Nafnlaus sagði…
Ohh hún er svoooo fín.
Úlfur er á hormónastiginu, örugglega með hundrað hormóna (bólur) á kinnunum, og sýkingu í auga, greyjið, böggar mig samt meira en hann. Prinsessan ykkar svo fín og sæt, heppin að vera ekki með hormóna (bólur) ;o)
SAKNA þÍN Mjólkurkolla
Nafnlaus sagði…
En af hverju á þriðjudögum eru þeir eitthvað "spes" dagar ???
Nafnlaus sagði…
heheh.... þú ert svo mikið yndi Aldís mín;)
Gott að ykkur líði samt svona vel í Danaveldi.
já maður er sko heppinn að fá fullkomlega heilbrigt barn ;)
þúsund kossar til þín og fjölskylduna sem þú átt.
Þú ert svo rík
lov
írí
Nafnlaus sagði…
Æji jesús minn,litla snúllan.Gott samt að það var nú ekki alvarlegra en þetta!!! :) Fylgist með ykkur.... :)
Knús og kossar....
Nafnlaus sagði…
Litla gullið, gott að ekkert alvarlegra var að. Þú sverð þig greinilega í ættina. Þú veist nú ábyggilega hvað Edda var lengi með sína á brjósti og Alexander minn var tvö ár og tveimur mánuðum betur. Amma nafna sagði að það væri í ættinni að mjólka svona vel :)
P*aldis sagði…
Æj, hvað það er nú notalegt.. að vera svona "í ættinni" ;o)
Þá er allt eins og það á að vera !!

Jeg var sjálf á brjósti í 2 ár !!
- Gerði samning við pabba, og fjékk HJÓL í staðinn fyrir að hætta á brjósti..

bissnesskona sko!!
Nafnlaus sagði…
Það er svo notarlegt að hafa þessi yndislegu krútt hangandi á túttunni sinni.
Já þú ert heppin að eiga hrausta og heilbrigða stúlku.
Jón Einar er kominn með nýtt gælunafn, hann kallast Jón Bóndi, hann er dýsasjúkur fór í húsdýragarðinn í dag og hann srjórnaði fjósinu gjörsamlega hjá beljunum og langaði helst að knúsa Nautið í klessu.
Nafnlaus sagði…
Æj litlu dúllurnar minar, leitt að heyra að spítaladvölinni en mikið er ég glöð að heyra að allt er í lagi.
kv.Lúlla

Vinsælar færslur