Jeg sá halta dúfu í dag..

Er búin að vera með hana hálf á heilanum síðan..

Hún var ljót, og skítug..
..og það var eitthvað flækt í fætinum á henni

Jeg hjólaði bara áfram.. fylgdist með henni baxla við nokkur skref
í matarleit, með öðrum

Jeg hafði ekki lyst á að koma við hana, og reyna að hjálpa henni
Hún hefði kannski bitið mig ?
- eða e-ð verra.. .

Kannski hefði jeg getað lagað hana ?





..kannski ekki ?

Ummæli

Vinsælar færslur